Sum ljóðin voru gefin út í bókinni Þyrnar og Rósir 1992. Önnur eru nýrri.
Monday, July 11, 2005
Hallgrímskirkja
Hár er Maríuhálsinn og hvítur, jæja grár. Reigir sig upp í himininn teygir sig upp til Guðs. Hægt er að taka lyftu þangað upp.
Inni í þessari örk á hvolfi, má snúa í austur og vestur, og sitjandi hlusta á lofgjörð úr fægðu stáli. Þetta er hús sem Hallgrím hefði langað til að sjá rísa á Grundartanga.
0 Comments:
Post a Comment
<< Home