Þingvellir

Af Hakinu má sjá,
að þangað komu tignir gestir.
Í brjóstinu svellur ættjarðarástin
til beggja heimsálfa
þegar þú gengur í Almannagjá,
þar sem hver steinnibba angar af sögu.
Og þó þú vitir
að á Lögbergi ertu óhultur,
nema fyrir roki og regni,
langar þig mest að leggjast
í lautu við Skötutjörn
og dreyma langa drauma.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home