Snjóblóm

Einhvers staðar í hrjóstrinu,
á hörðu gráu grjótinu
getur þú fundið þau
þar sem þau spretta án róta.
Það stirnir á þau,
geislar af þeim
og af þeim drýpur
safi lífsins
í stórum hunangssætum
dropum.
Þau heita kannski ekki neitt
en ég kalla þau
Snjóblóm.
Einhvern tíma
þegar síst varir,
rekst þú á svona blóm
og þú veistað þú hefur fundið
Snjóblóm.
(Þyrnar og Rósir 1992)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home