Monday, July 11, 2005

Flóttafólk


Á alfaraleið
og á heljarslóð
mætti ég manni
konu og barni.

Án andlita hurfu þau
inn í leyndardóminn
til að birtast á ný
í aldanna rás
með augun full af spurningum
eins og ég.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home